Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 94/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 94/2020

Föstudaginn 6. mars 2020

A og

B

gegn

Suðurnesjabæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. febrúar 2020, kærðu A, og B, til úrskurðarnefndar velferðarmála erindi Suðurnesjabæjar, dags. 3. febrúar 2020, vegna þjónustu sveitarfélagsins við fatlaða dóttur þeirra.

I.  Málsatvik

Kærendur greina frá því að þau hafi orðið fyrir tjóni vegna mistaka félagsþjónustu sveitarfélagsins. Tjónið samsvari greiðslum fyrir þjónustu við dóttur þeirra frá 1. janúar 2011 til 1. desember 2015. Kærendur krefjast þess að sveitarfélagið bæti fyrir tjónið með fjárhæð sem svari til greiðslu vegna vinnu þeirra framangreint tímabil.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Þannig er grundvöllur þess að unnt sé að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þær ákvarðanir stjórnvalda sem ekki eru teknar í skjóli stjórnsýsluvalds, t.d. þær sem eru einkaréttarlegs eðlis, teljast ekki stjórnvaldsákvarðanir.

Af bréfi Suðurnesjabæjar, dags. 3. febrúar 2020, kæru, og þeim gögnum sem kærendur lögðu fram með kæru verður ekki ráðið að tekin hafi verið kæranleg stjórnvaldsákvörðun í máli þeirra. Þvert á móti hafi kærendur upplýst um það á fundi 29. júlí 2019 að þeir væru að íhuga að beina skaðabótakröfu að sveitarfélaginu vegna tímabilsins 2011 til 2015, og að þeim hafi fundist brotið á rétti þeirra vegna umönnunar dóttur þeirra. Með bréfinu hafnaði sveitarfélagið því að það hafi gerst brotlegt og einnig greiðsluskyldu. Um ákvörðun einkaréttarlegs eðlis var að ræða. Það er því mat úrskurðarnefndarinnar að málið sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, og B, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum